Sony Xperia Z5 Compact - Kennsl borin á tónlist með TrackID™‎

background image

Kennsl borin á tónlist með TrackID™

Notaðu TrackID™ tónlistargreiningartæknina til að bera kennsl á lag sem þú heyrir í

umhverfi þínu. Taktu bara upp smáhluta af laginu og þú færð flytjanda, heiti og

plötuupplýsingar á nokkrum sekúndum. Þú getur keypt lög sem TrackID™ ber kennsl á

og skoðað TrackID™ lista til að sjá hverju notendur TrackID™ um víða veröld eru að leita

að. Bestur árangur fæst með því að nota TrackID™ í hljóðlátu umhverfi.

1

Pikkaðu á til að opna valmynd heimaskjás myndskeiða

2

Skoðaðu sögu frá fyrri leitum

3

Kynntu þér vinsælasta lagið, vinsæla spilunarlista, ný lög og fleira

4

Sjáðu hverju aðrir fylgjast með

5

Leitaðu að lögum, plötum og flytjendum

6

Berðu kennsl á tónlistina sem þú hlustar á

Hugsanlega eru TrackID™ forritið og sumir eiginleikar TrackID™ þjónustunnar ekki studdir í

öllum löndum eða svæðum, eða í öllum kerfum og/eða af öllum þjónustuveitum. Hægt er að

tengja TrackID™ við straumspilunarþjónustur sem til staðar eru í þínu landi.

Kennsl borin á tónlist með TrackID™ tækni

1

Á

Heimaskjár pikkarðu á .

2

Finndu og pikkaðu á

TrackID™ og beindu tækinu í átt að tónlistinni.

3

Pikkaðu á . Ef TrackID™ þekkir lagið birtast niðurstöðurnar á skjánum.

Til að fara aftur á

TrackID™ upphafsskjáinn pikkarðu á .

Upplýsingar um flytjanda lags skoðaðar

1

Eftir að

TrackID™ forritið ber kennsl á lagið birtist niðurstaðan á heimskjá

TrackID™.

2

Flettu að niðurstöðunni sem þú vilt skoða og pikkaðu til að opna hana.

Lagi eytt úr lagasögu

1

Opnaðu

TrackID™ forritið og flettu að laginu sem þú vilt eyða.

2

Snertu og haltu skjánum til að láta birtast.

3

Pikkaðu á .

TrackID™ LIVE notað

Þú getur notað TrackID™ LIVE til að sjá LIVE-rakningar í rauntíma.

Opnaðu

TrackID™ forritið og pikkaðu síðan á BEINT.

Þú getur stillt hversu hratt þú vilt fá rakninguna og getur slökkt og kveikt á forskoðun laga.